Veðrið

Klukkan

Ulti Clocks content
Fyrsta folaldið fætt
Miðvikudagur, 16 Maí 2012 22:40
Smelltu á myndÍ nótt kastaði Gleði frá Svarfhóli (a.eink.8,32) brúnu/svörtu (7,8% líkur á þessum lit) merfolaldi á fannhvíta jörðina. Folaldið er undan Fróða frá Staðartungu (a.eink.8,59), en hann er undan Hágangi frá Narfastöðum. Hryssan unga hefur hlotið nafnið Snædís og er fyrsta folaldið sem fæðist í ár á Jarðbrú. Mæðgunum heilsast vel eftir hremmingar morgunsins en önnur fylfull meri var búin að "stela" folaldinu og þurfti að bjarga mæðgunum úr hópnum svo móðirinn kæmist að afkvæmi sínu. Bændur á Jarðbrú voru snemma á fótum og fóru af stað um kl.5.30 til að bjarga málunum.
Lesa meira...
 
Hörkuvetur í dag
Sunnudagur, 13 Maí 2012 23:13
Smelltu á myndÍ dag er búið að vera norðan áhlaup rok og snjókoma og leiðindaveður. Ekki skemmtilegt veður miðað við árstíma. Tókum inn nokkur hross þ.á.m. fylfullar hryssur komnar að köstun. Myndirnar tala sínu máli.
Lesa meira...
 
Bragginn rifinn og hluti fjárhúss
Sunnudagur, 13 Maí 2012 12:31
Smelltu á myndÍ gær safnaði Stefán Hólm liði og kláraði að rífa braggann og þakplötur á elsta hluta fjárhússins. Byrjað var fyrir nokkru á þessu en spáin fyrir daginn í dag er ekki góð svo best var að taka þetta með áhlaupi í gær. Bragginn var kominn til ára sinna og búinn að þjóna sínu hlutverki. Myndirnar tala sínu máli.
Lesa meira...
 
Göngutúr og kaffi hjá Sigga Mar
Laugardagur, 05 Maí 2012 15:56
Smelltu á myndFórum í morgun að skoða fylfullu merarnar uppi á túni og athuga hvort Gleði væri köstuð, en hún ætlar eitthvað að láta bíða eftir sér. Löbbuðum síðan í kaffi til Sigga Mar en þar var góðmennt að vanda á laugardagsmorgni.
Lesa meira...
 
Skoðun á ungfolum
Fimmtudagur, 26 Apríl 2012 22:47

Smelltu á myndÁ þriðjudaginn var skoðun á ungfolum sem Hrossaræktarsambandið bauð upp á. Þorvaldur Kristjánsson, Eyþór Einarsson og Vignir Sigurðsson heimsóttu okkur og skoðuðu folana. Næstu daga munu þeir senda eigendum umsögn um þá. Hér að neðan má sjá folana sex sem skoðaðir voru á Jarðbrú, en þeir eru ekki allir í okkar eigu, eins og kemur fram hér að neðan.

 

Lesa meira...
 
Videó af Ás Eyfjörð
Fimmtudagur, 26 Apríl 2012 21:53

 

Smelltu á myndHér má sjá videóbrot af Ás Eyfjörð tekið á síma í heimsókn hluthafa og gesta s.l. föstudag. 

 
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Gestagangur

Það er/u 2 gestir inni

Quality control

Borði

Mynd augnabliksins

5.jpg
Borði

Heimsóknir

mod_vvisit_counter í dag28
mod_vvisit_counterí gær56
mod_vvisit_counter alls41212