Veðrið

Klukkan

Ulti Clocks content
Tinna tekin á hús
Mánudagur, 13 Febrúar 2012 22:21
Smelltu á myndUm helgina var 1.verðlauna hryssan Tinna tekin á hús, en hún er því miður geld. Tinna er dóttir Adams frá Ásmundarstöðum og Óvissu okkar. Það verður spennandi og ekki leiðinlegt að hreyfa svona gæðing fram á vorið. Ekki vantar prúðleikann hjá henni.
Lesa meira...
 
Farið vestur að Hólum
Miðvikudagur, 08 Febrúar 2012 21:58
Smelltu á myndFórum í fyrradag á Hóla í Hjaltadal með í tamningu til Hólanemans Bergþóru Sigtryggsdóttur. Á kerrunni var stóðhestefnið Ás-Eyfjörð frá Bakka og Snædís frá Árhóli, bæði Álfsafkvæmi. Tókum til baka Emmu frá Jarðbrú sem myndin er af ásamt henni Beggu tamningarkonu og Siggu og Jonna ræktendum að Árhóli. Myndin er tekin inn í hesthúsinu á Hólum.
 
Unnið við veturgömlu trippin
Miðvikudagur, 25 Janúar 2012 22:55

Smelltu á myndSíðustu daga höfum við verið að vinna í veturgömlu trippunum og hefur það gengið ljómandi vel. Öll trippin svara taumnum vel taka bara ekki í hann. Gaman er að sjá hvað þau eru fljót að læra. Upplagður aldur til að byrja að kenna frumatriðin. Á efstu myndinni er Trú þá Eldur og neðst Vissa.

Lesa meira...
 
Hrossin hreyfð í blíðunni
Þriðjudagur, 17 Janúar 2012 22:11

Smelltu á myndBúið er að vera gott reiðfæri og ágætisveður. Hrossin hreyfð upp á hvern dag eða því sem næst. Á myndunum má sjá tvo virðulega knapa úr heldri deild hreyfa fáka sína. Jonna á brúnskjóttu undan Andvara og Dodda á leirljósu undan Degi.

Lesa meira...
 
Folöldin örmerkt
Mánudagur, 16 Janúar 2012 22:52
Smelltu á myndÍ gær örmerktum við folöldin og mætti Zóffi til að merkja fyrir okkur. Á myndunum má sjá Dodda og Zóffa vera að merkja Glanna undan Musku og Gígjari og Trú undan Tinnu og Hrímni.
Lesa meira...
 
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla
Mánudagur, 09 Janúar 2012 21:35
Smelltu á myndÁ gamlársdag var farin hin hefðbundna reið fram á Jarðbrú. Myndirnar eru teknar af þeim atburði. Sumar eru í lit og aðrar ekki, ný tækni. Óskum síðan öllum gleðilegs árs og vonum að þetta landsmótsár verði öllum til heilla.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Gestagangur

Það er/u 1 gestur inni
Borði

Heimsóknir

mod_vvisit_counter í dag14
mod_vvisit_counterí gær50
mod_vvisit_counter alls36450

Mynd augnabliksins

20.jpg